Hoppa yfir valmynd

Loftstlagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna

Tuttugasti og níundi aðildarríkjafundur og ráðstefna Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP29) fer fram í Aserbaísjan dagana 11. - 22. nóvember 2024.

Loftslagsráðstefnan er árlegur viðburður sem haldinn er í tengslum við rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar frá árinu 1992 en markmið samningsins er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum. Á ráðstefnunni hittast samninganefndir aðildarríkja samningsins til þess að ræða stöðu og næstu skref í loftslagsmálum en Parísarsamkomulagið var samþykkt á Loftslagsráðstefnunni í París árið 2015.

Ráðstefnuna sækja aðildarríki loftslagssamningsins og samninganefndir en þátttaka annarra aðila sem styðja loftslagsvegferðina hefur farið vaxandi undanfarin ár. Má þar á meðal nefna alþjóðastofanir, frumkvöðla, fjárfesta, hagsmunasamtök og fyrirtæki, enda er hlýnun jarðar og áhrif á loftslagsbreytingar eitt stærsta viðfangsefni okkar samtíma.

Þingið er að þróast í þá átt að vera ekki eingöngu samningavettvangur aðildaríkjanna heldur innleiðingavettvang þar sem áherslan er á lausnamiðað samtal, þekkingarmiðlun og samstarf um leiðir að settu marki. Hlutur atvinnulífsins á þinginu hefur því stóraukist enda er þetta stærsta þing um loftslagaðgerðir í heiminum ár hvert. Þátttaka íslensks atvinnulífs á þinginu er mikilvægur liður sem styður við loftslagsaðgerðir og markmið Íslands en jafnframt er þetta lykilvettvangur til að vekja athygli á framlagi og lausnum Íslands gagnvart öðrum þjóðum og samstarfsaðilum um heim allan.

Framlag Íslands í þágu loftslagsmála er mikilvægt en þátttaka fyrirtækjanna á vettvangi þessum getur líka skilað verðmætum heim. Fyrirtækin fá þar sæti við lausnaborðið og gefst þannig tækifæri til að eiga samtal á fundum og málstofum, miðla sínum lausnum til annarra ríkja og mögulegra samstarfsaðila og deila eigin reynslu. Þá er ráðstefnan ekki síður suðupottur þekkingarmiðlunar sem nýtist í áframhaldandi vinnu fyrirtækja hérlendis.

Ráðstefnusvæðið skiptist annarsvegar í bláa svæðið, þ.e. formlega samningasvæðið þar sem samninganefndirnar koma saman og þarf sérstakan aðgang að, og hinsvegar græna svæðið sem er öllum opið. Grænvangur heldur utan um þátttöku viðskiptasendinefndar Íslands á COP29 í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Fulltrúar í viðskiptasendinefnd fá í gegnum þátttöku sína aðgang að bláa svæði ráðtefnunnar.

Á þessari síðu verður upplýsingum um COP29 í Bakú í Aserbaíjan miðlað þegar nánari upplýsingar um þingið liggja fyrir.

Mynd eftir Andreas Omvik. Copyright Nordisk Råd og Nordisk Ministerråd.

Fulltrúar úr íslensku atvinnulífi hafa undanfarin ár sótt ráðstefnuna og sumir jafnvel tekið þátt í málstofum eða öðrum dagskráliðum. Meðal atvinnulífsins hefur áhugi á þátttöku í ráðstefnunni farið vaxandi með því markmiði að ræða lausnir, efla tengsl og koma á auknu alþjóðlegu samstarfi í grænu umskiptunum. 

Til að fylgjast með helstu fréttum um Loftslagsráðstefnuna hvetjum við áhugasama um að skrá sig á fréttabréfið okkar.