Hoppa yfir valmynd

Um Grænvang

Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda sem stuðlar að framþróun í loftslagsmálum og grænum lausnum. Innan vettvangsins vinna stjórnvöld og atvinnulíf saman að því að efla samtal, samvinnu og samhljóm um loftslagsmál og grænar lausnir. Vettvangurinn tengir saman stjórnvöld, atvinnugreinar, ráðuneyti, stofnanir og aðra hagaðila og þjónar sem hlutlaus miðja. Allt frá stofnun hefur verið unnið að því að efla starfsemi vettvangsins með margvíslegum hætti í nánu samstarfi við bakland og samstarfsaðila.

Grænvangur var stofnaður árið 2019 sem samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir. Bakland Grænvangs samanstendur af íslenskum stjórnvöldum og leiðtogum atvinnulífsins í loftslagsmálum. Hlutverk Grænvangs er að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og styðja við markmið um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040. Grænvangur leiðir saman íslensk fyrirtæki og stjórnvöld í innlendum aðgerðum til að ná því sameiginlega markmiði. Auk þess styður Grænvangur við útflutning grænna lausna frá Íslandi með markaðsverkefninu Green by Iceland.

Stjórn Grænvangs er kosin á aðalfundi sem haldinn er árlega og er hún skipuð 5 fulltrúum atvinnulífsins og 5 fulltrúum frá hinu opinbera.  

Ársskýrsla Grænvangs 2025
Ársskýrsla Grænvangs 2024
Ársskýrsla Grænvangs 2023

Starfsfólk

Employee
Nótt Thorberg

Forstöðumaður Grænvangs

Employee
Hans Orri Kristjánsson

Verkefnastjóri

Stjórn Grænvangs

Sigurður Hannesson

Samtök iðnaðarins, formaður stjórnar

Anna Margrét Guðjónsdóttir

Evris

Guðmundur Þorbjörnsson

EFLA verkfræðistofa

Hera Grímsdóttir

Orkuveitan

Jóna Þórey Pétursdóttir

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Magnús Örn Agnesar Sigurðsson

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Ríkarður Ríkarðsson

Landsvirkjun

Sveinbjörn Finnsson

Forsætisráðuneytið

Sigríður Margrét Oddsdóttir

Samtök atvinnulífsins

Rafn Helgason

Utanríkisráðuneytið