Umsóknarferli vegna þátttöku í sendinefnd atvinnulífsins á COP31
Grænvangur heldur utan um þátttöku sendinefndar atvinnulífsins á COP31 í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Opnað verður fyrir umsóknir í sendinefnd atvinnulífsins í maí nk.
Í maí hefst formlegt umsóknarferli fyrir sæti í sendinefnd atvinnulífsins. Gert er ráð fyrir að hámarki 50 fulltrúum fyrirtækja í sendinefndinni. Einungis fyrirtæki geta sótt um þátttöku, þ.e. einstaklingar geta ekki sótt um. Miðað er við að hvert fyrirtæki geti sótt um þátttöku fyrir allt að tvo fulltrúa. Sé vilji til að senda fleiri fulltrúa er mögulegt að óska eftir því með rökstuðningi. Farið verður sérstaklega yfir slíkar óskir eftir að umsóknir hafa verið afgreiddar.
Fyrirtæki þarf að geta sýnt fram á að eiga erindi á COP31 og vera með skýran tilgang fyrir þátttöku. Viðmið við úthlutun verða að fyrirtæki:
- Séu að sækja sér þekkingar eða tengsla á þinginu sem nýst geta í loftslagsvegferðinni á Íslandi.
- Séu að kynna lausnir eða þjónustu sem eru grænar.
- Séu að leita eftir viðskiptatengslum eða öðrum tengslum við erlenda hagaðila.
- Hafi náð viðeigandi áföngum í þróun og fjármögnum.
- Hafi gott orðspor og séu verðugir fulltrúar Íslands á alþjóðavettvangi.
- Séu starfandi á Íslandi (hafi íslenska kennitölu).
Þá er gert ráð fyrir að fulltrúar fyrirtækja í sendinefnd atvinnulífsins hafi íslenskt vegabréf eða starfi hér á landi þar sem skráning á COP31 fer fram í gegnum aðgang íslenskra stjórnvalda að COP.
Þegar sótt er um sæti í sendinefndinni þarf að skrá inn upplýsingar um fyrirtækið, rökstuðning fyrir þátttöku og markmiðum þess á COP31. Á síðari stigum þarf fyrirtækið að sjá fyrir frekari upplýsingum, svo sem kynningarefni, ítarlegri texta og tenglaupplýsingum fyrir fulltrúa fyrirtækisins í sendinefnd atvinnulífsins.
Eftir að úthlutun líkur hefur fyrirtækið umþóttunartíma til að staðfesta þátttöku (taka boði um sæti í sendinefndinni). Ákveði fyrirtæki ekki að þiggja sæti verður aðilum á biðlista úthlutað sæti.
Þátttaka í sendinefnd atvinnulífsins felur í sér kostnað fyrir fyrirtæki. Séu fyrirtæki í baklandi Grænvangs ráðgerir Grænvangur að niðurgreiða hluta kostnaðar þeirra.
Innifalið í þátttöku sendinefndar atvinnulífsins er:
- Umsjón með skráningu inn á COP31 svæðið, sem veitir aðgang inn á bláa svæðið UNFCCC (e. party overflow).
- Undirbúningsfundir, vinnustofur og tækifæri til tengslamyndunar fyrir þátttakendur í aðdraganda þingsins.
- Almannatengsl á Íslandi í aðdraganda þingsins um þátttöku sendinefndar atvinnulífsins.
- Mótun skilaboða, markaðssetning og almannatengsl undir nafni Green by Iceland á erlendum vettvangi.
- Stuðningur við kortlagningu samstarfstækifæra á þinginu og tengslamyndun við hagaðila sem sækja þingið.
- Tæki til tengslamyndunar á meðan að á þinginu stendur m.a. sameiginlegur kvöldverður fyrir íslenska þátttakendur.
- Stuðningur við samstarf stjórnvalda og atvinnulífs.
- Almenn upplýsingamiðlun til eflingar þátttöku fulltrúa í sendinefnd á meðan að á þinginu stendur.
Þátttaka fyrirtækja í sendinefnd atvinnulífsins felur í sér skuldbindingu til virkrar þátttöku í sameiginlegum undirbúningi fyrir COP31. Undirbúningsferlið felur meðal annars í sér mótun skilaboða fyrir sendinefndar á ráðstefnunni. Jafnframt er ferlinu ætlað að tryggja undirbúning fyrirtækjanna, meðal annars með upplýsingagjöf, aðstoð við tengslamyndun á ráðstefnunni sjálfri, undirbúning þátttöku fulltrúa fyrirtækja á málstofum á ráðstefnunni auk umsýslu.